Körfubolti

Haukur Helgi: Hugsaði að við værum að fara taka þennan leik

Anton Ingi Leifsson skrifar
Haukur Helgi í leiknum í dag.
Haukur Helgi í leiknum í dag. vísir/valli
Haukur Helgi Pálssn, landsliðsmaður Íslands í körfubolta, var svekktur, en stoltur af strákunum okkar í leikslok. Ísland tapaði fyrir Þýskalandi 71-65 í fyrsta leik Ísland á Eurobasket.

„Ég veit ekki alveg hvað ég á að segja. Ég er ánægður, en samt svekktur," voru fyrstu viðbrögð Hauks Helga í samtali við blaðamann Vísis í Berlín.

„Við vorum mjög nálægt þessu og mér fannst við virkilega geta unnið þetta. Sérstaklega þegar við fórum að spila okkar leik."

„Við bættum aðeins í hraðann og byrjuðum að hitta vel. Þá hugsaði ég bara að við værum að fara taka þennan leik, leiðinlegt að tapa svona, en við sýndum hversu megnugir við erum og við sýndum að við erum ekkert hérna til að gefast upp."

Haukur segir að þetta gefi góð fyrirheit fyrir mótið og þeir ætli sér í hvern einasta leik til að vinna - ekki bara vera með.

„Já klárlega. Við ætluðum að koma hérna og sjokkera alla sem eru að horfa á þetta. Að litla Ísland eigi ekki að vera hérna - við eigum fyllilega skilið að vera hér. Við sýndum það og sönnuðum."

Íslenska liðið hitti ekki vel í fyrri hálfleik, en Haukur Helgi að segir að það sé erfitt fyrir að segja hvað hefði gerst ef þeir hefðu hitt betur í fyrri hálfleik.

„Maður veit aldrei hvað hefði gerst og það er erfitt að segja ef þau hefði dottið í síðari hálfleik. Þau fóru að detta í síðari hálfleik og við komum okkur í stöðu til þess að vinna og það skiptir máli. Við höldum því áfram."

„Við vorum harðir fyrir. Þýskaland eru þekktir fyrir að vera harðir fyrir og við erum harðari. Það sýndi sig kannski þegar við vorum aðeins byrjaðir að lemja á þeim og unnum okkur þannig inn í leikinn," segir Haukur og bætir við að hann hafi ekki áhyggjur af því að liðið nái ekki fullri orku fyrir leikinn gegn Ítalíu á morgun:

„Nei, nei. Þetta var fyrsti leikurinn og við fáum nægan tíma til þess að safna orku fyrir morgundaginn. Síðan fáum við frí á mánudaginn svo við erum góðir," sagði Haukur Helgi að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×