Körfubolti

Haukur Helgi: Gaman að geta gert þetta fyrir eldri kynslóðina í liðinu

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Jón Arnór og Haukur Helgi kampakátir eftir sigurinn í kvöld.
Jón Arnór og Haukur Helgi kampakátir eftir sigurinn í kvöld. vísir/óój
Haukur Helgi Pálsson er einn af ungu strákunum í liðinu sem hafa hjálpað íslenska liðinu að taka þetta risaskref í kvöld með að tryggja sig langleiðina inn á EM með 71-69 sigri á Bretum í London.

Haukur Helgi var bæði að glíma við meiðsli í hné og veikindi en hann gaf samt allt sitt í leikinn eins og aðrir í liðinu.

„Þetta var lífsreynsla sem ég held að ég eigi ekki eftir að upplifa aftur," sagði Haukur um sigurinn í Koparkassanum í kvöld.

„Það var líka gaman að geta gert þetta fyrir eldri kynslóðina í liðinu og hkjálpa þeim að komast á EM. Menn eins og Hlynur, Jón, Logi, Helgi og þá sem eiga ekki eftir að vera í þessu í meira en fimm ár í viðbót," sagði Haukur brosandi en hann sjálfur á nóg eftir enda bara 22 ára gamall.

Íslenska liðið var tíu stigum undir í hálfleik en sýndi allt annan og betri leik í seinni hálfleiknum.

„Þeir komu sterkir inn í fyrri hálfleikinn og voru bara betri en við. Við vissum það að við vorum búnir að stíga nokkrum sinnum á hliðarlínuna og klikka á opnum sniðskotum. Við vissum alveg að við áttum annan gír og að við værum að fara komast aftur inn í þetta," sagði Haukur.

„Við gíruðum okkur upp í þriðja leikhlutanum. Þeir spiluðu líka vel í kvöld en þetta datt okkar megin og ég held að okkur hafi langað þetta meira," sagði Haukur en hversu stórt var að klára svona mikilvægan leik á útivelli.

„Þetta var risastór sigur og bara geðkveikt kvöld," sagði Haukur að lokum en hann skoraði sjö stig í leiknum í kvöld.


Tengdar fréttir

Leik lokið: Bretland - Ísland 69-71 | Strákarnir eru á leiðinni á EM

Íslenska körfuboltalandsliðið er á leiðinni á EM eftir frábæran 71-69 endurkomusigur á Bretum í Koparkassanum í London í kvöld. Íslenska liðið var tíu stigum undir í hálfleik en gafst ekki upp og tryggði sér sigurinn með stórkostlegum seinni hálfleik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×