Fótbolti

Haukur Heiðar skoraði annan leikinn í röð

Anton Ingi Leifsson skrifar
Haukur Heiðar í leik með íslenska landsliðinu.
Haukur Heiðar í leik með íslenska landsliðinu. vísir/getty
Haukur Heiðar Hauksson skoraði eitt marka AIK í 3-2 sigri á Falkenbergs FF í sænsku úrvalsdeildinni í dag.

Þetta var þriðja mark Hauks í úrvalsdeildinni, en hann kom AIK í 2-1 undir lok fyrri hálfleiks.

Carlos Strandberg kom svo AIK í 3-1 með sínu öðru marki í upphafi síðari hálfleiks, en Thomas Juel-Nielsen minnkaði muninn níu mínútum fyrir leikslok, einnig með sínu öðru marki. Lokatölur 3-2.

Þetta er annað mark Hauks á fjórum dögum, en hann skoraði einnig gegn Djurgården í nágrannaslag á dögnum.

Hann spilaði allan leikinn í kvöld fyrir AIK sem er í fjórða sætinu með 18 stig. Falkenbergs er á botninum með fjögur stig.

Haukur Heiðar virðist líka vel við spila gegn Falkenbergs, en hann skoraði einnig þegar AIK sló Falkenbergs út úr bikarnum í mars.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×