Handbolti

Haukastelpur fyrstar til að leggja Fram

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Fram er ekki ósigrandi
Fram er ekki ósigrandi vísir/getty
Haukar unnu Fram 22-19 á heimavelli í Olís deild kvenna í handbolta í kvöld. Haukar urðu þar með fyrsta liðið til að leggja Fram að velli í vetur.

Haukar voru 13-10 yfir í hálfleik og náðu að halda forystu sinni þegar yfir lauk en Fram hefur verið ósigrandi í vetur.

Sigurbjörg Jóhansdóttir skoraði 6 mörk fyrir Fram. Marthe Sördal skoraði 4 og Ragnheiður Júlíusdóttir 3.

Marija Gedroit skoraði 10 mörk fyrir Hauka og Karen Helga Díönudóttir 7.

Fram er ennþá á toppi deildarinnar, með 20 stig eftir 11 umferðir. Haukar eru komnir upp í 5. sæti með 12 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×