Íslenski boltinn

Haukarnir halda sinni efnilegustu stelpu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Alexandra Jóhannsdóttir handsalar samninginn.
Alexandra Jóhannsdóttir handsalar samninginn. Mynd/Haukar
Unglingalandsliðskonan Alexandra Jóhannsdóttir hefur endurnýjað samning sinn við knattspyrnudeild Hauka en nýi samningur hennar gildir til október 2019.

Alexandra, sem er aðeins sautján ára gömul, var valin besti leikmaður meistaraflokks kvenna eftir síðasta keppnistímabil þegar liðið tryggði sér sæti í Pepsi-deildinni.

Alexandra, sem spilar á miðjunni, spilaði alls 18 leiki í 1. deildinni og í úrslitakeppninni á síðasta tímabili og skoraði sex mörk.

Frá árinu 2015 hefur Alexandra spilað 22 leiki með U17 landsliði Íslands og skorað sjö mörk.

Knattspyrnudeild Hauka sendi frá sér fréttatilkynningu í kvöld þar sem segir að Haukarnir fagni þessum nýjum samningi við Alexöndru sem er ein efnilegasta knattspyrnukona landsins og er afar mikilvægur leikmaður meistaraflokks kvenna.

Það var örugglega mikill áhugi frá öðrum liðum að fá Alexöndru til síns en hún ákvað að spila áfram fyrir sitt uppeldisfélag sem mun hjálpa liðinu mikið í Pepsi-deildinni í sumar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×