Körfubolti

Haukar og Snæfell komin á blað

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Pálína skoraði 10 stig fyrir Snæfell í kvöld
Pálína skoraði 10 stig fyrir Snæfell í kvöld vísir/anton
Tveir leikir voru í annarri umferð Dominos-deildar kvenna í körfubolta í kvöld. Haukar og Snæfell unnu sína fyrstu sigra á tímabilinu.

Haukar lögðu Val 67-60 á heimavelli. Valur var 33-29 yfir í hálfleik en Haukar sigldu framúr í fjórða leikhluta og tryggðu sér sigur.

Michelle Nicole Mitchell skoraði 30 stig fyrir Hauka auk þess að taka 16 fráköst. Sólrún Inga Gísladóttir skoraði 13 stig og Dýrfinna Arnardóttir 10.

Hjá Val skoraði Mia Loyd 27 stig auk þess að taka 18 fráköst og Elín Sóley Hrafnkelsdóttir skoraði 15 stig.

Snæfell rúllaði á sama tíma yfir Njarðvík 84-59. Snæfell lagði grunninn í fyrsta leikhluta sem liðið vann 17-4 en Snæfell var 43-22 yfir í hálfleik.

Leikurinn var því eins og tölurnar gefa til kynna aldrei spennandi.

Taylor Brown var stigahæst hjá Snæfelli með 27 stig. Berglind Gunnarsdóttir skoraði 14. Hjá Njarðvík var Carmen Tyson-Thomas í sérflokki með 34 stig.

Haukar, Snæfell og Njarðvík hafa öll unnið annan af tveimur leikjum sínum en Valur er eitt liða án sigurs í deildnini eftir tvo leiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×