Íslenski boltinn

Haukar meistarar

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Haukar leika í Pepsi-deildinni 2017.
Haukar leika í Pepsi-deildinni 2017. mynd/haukar
Haukar tryggðu sér sigur í 1. deild kvenna í fótbolta með stórsigri, 1-5, á Grindavík í úrslitaleik í dag.

Haukar tryggðu sér sæti í Pepsi-deildinni með sigri á Keflavík á föstudaginn og kláruðu svo tímabilið með stæl í dag.

Grindavík byrjaði leikinn betur og komst yfir strax á 3. mínútu með marki Drafnar Einarsdóttur. En svo tóku Haukar leikinn yfir og skoruðu fimm mörk gegn engu Grindvíkinga.

Þórdís Elva Ágústsdóttir, Dagrún Birta Karlsdóttir, Heiða Rakel Guðmundsdóttir, Hildigunnur Ólafsdóttir og Alexandra Jóhannsdóttir skoruðu mörk Hauka sem fögnuðu vel og innilega í leikslok.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×