Handbolti

Haukar höfðu betur gegn Gróttu á Nesinu

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Guðrún Erla var markahæst í Haukaliðinu.
Guðrún Erla var markahæst í Haukaliðinu. vísir/ernir
Grótta náði ekki að fylgja eftir frábærum leik í 1. umferð Olís-deildar gegn Fram því liðið tapaði, 20-23, gegn Haukum í kvöld.

Fyrsti sigur Hauka í deildinni í vetur því kominn í hús en liðið tapaði gegn Valsstúlkum í fyrstu umferð.

Guðrún Erla Bjarnadóttir skoraði fjögur mörk fyrir Hauka í kvöld en Lovísa Thompson skoraði sjö fyrir Gróttu.

Grótta spilar næst gegn Val en Haukar taka á móti Stjörnunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×