Körfubolti

Haukar geta gert það í kvöld sem þeim hefur ekki tekist í 77 daga

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Það gengur ekkert hjá Emil Barja og félögum að landa sigri í jöfnum leikjum á útivöllum.
Það gengur ekkert hjá Emil Barja og félögum að landa sigri í jöfnum leikjum á útivöllum. Vísir/Anton
Fjórir leikir fara fram í 17. umferð Domino´s deildar karla í kvöld og þar á meðal er leikur ÍR og Hauka í Hertz hellinum í Seljaskóla.

Haukar eru tveimur stigum á eftir ÍR en bæði lið teljast vera samtímis í fallbaráttu og að berjast um sæti í úrslitakeppninni. Það er því mikið undir í þessum leik liðanna í kvöld.

Haukar hafa ekki unnið útileik síðan að þeir heimsóttu Snæfelli í Stykkishólm 1. desember síðastliðinn eða fyrir 77 dögum síðan.Frá þeim tíma hefur Haukaliðið tapað fjórum útileikjum á móti KR, Þór Þorl., Skallagrím og Tindastól.  Í viðbæt bætist síðan tapleikur á móti 1. deildarliði Vals í Maltbikarnum.

ÍR-ingar hafa aftur á móti verið á mikilli siglingu í Seljaskólanum en Breiðholtsliðið hefur unnið fjóra heimaleiki í röð eða alla heimaleiki sína á fyrrnefndum 77 dögum.

ÍR hefur unnið í þessum fjórum leikjum lið Þór Þorl, lið Njarðvíkur, lið Stjörnunnar og lið Skallagríms en þrjú þeirra eru ofar í töflunni.

Það er annars athyglisvert að skoða útileiki Haukaliðsins í vetur því liðið hefur tapað sjö af átta útileikjum en þrír af tapleikjunum hafa komið í framlengingu og liðið hefur ekki tapað með meira en tíu stigum á útivelli í allan vetur. Vissulega sjö töp en fjögur þeirra með fimm stigum eða minna.

Hlutirnir hafa svo sannarlega ekki fallið með Haukaliðinu í útileikjunum í vetur og nú er spurning hvort að það fari að breytast á endasprettinum.

Þrátt fyrir að vera aðeins með þrettán prósent sigurhlutfall á útivelli í vetur þá hafa ennfremur aðeins þrjú af liðum deildarinnar (Þór Ak., Stjarnan og KR) skorað fleiri stig í leik á útivelli.  Haukar eru með 87,6 stig að meðaltali í útileikjum sínum.

Það fylgir reyndar sögunni að aðeins botnlið Snæfells (104,1) hefur fengið fleiri stig á sig í útileikjunum því Haukar hafa fengið á sig 90,8 stig.

Útileikir Haukaliðsins í Domino´s deildinni í vetur:

26. janúar í Vesturbæ - 8 stiga tap fyrir KR (69-77)

20. janúar í Þorlákshöfn - 10 stiga tap fyrir Þór (84-94)

5. janúar í Borgarnesi - 2 stiga tap fyrir Skallagrím (102-104, framlenging)

15. desember á Sauðárkróki - 5 stiga tap fyrir Tindastól (82-87)

1. desember í Stykkishólmi - 17 stiga sigur á Snæfelli (78-95)

16. nóvember í Njarðvík - 10 stiga tap fyrir Njarðvík (88-98)

4. nóvember á Akureyri - 3 stiga tap fyrir Þór (93-96, framlenging)

13. október í Grindavík - 4 stiga tap fyrir Grindavík (88-92, framlenging)




Fleiri fréttir

Sjá meira


×