Erlent

Háttsettur leiðtogi ISIS „líklega“ felldur í loftárásum

Samúel Karl Ólason skrifar
Abu Omar al-Shishani var yfirmaður hernaðaraðgerða í norðurhluta Sýrlands.
Abu Omar al-Shishani var yfirmaður hernaðaraðgerða í norðurhluta Sýrlands. Vísir/AFP
Leyniþjónustur Bandaríkjanna reyna nú að staðfesta að Abu Omar al-Shishani, sem betur var þekktur sem „Tjetjeninn“, hafi fallið í loftárásum á föstudaginn. Árásin var gerð nærri bænum al-Shaddadi og er talið „líklegt“ að Shishani hafi fallið í árásinni.

Hann var þekktur sem einn af hæfustu hernaðarleiðtogum Íslamska ríkisins og var fyrrverandi meðlimur í sérsveit hersins í Georgíu.

Samkvæmt frétt CNN mun dauði hans hafa mikil áhrif á getu ISIS og þá sérstaklega burði þeirra til að fá erlenda vígamenn til að ganga til liðs við sig. Talið er að tólf aðrir vígamenn hafi fallið í árásunum.

Shishani var yfirmaður hernaðaraðgerða í norðurhluta Sýrlands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×