Innlent

Hastarlega veikur á Reykhólum

Gissur Sigurðsson skrifar
Þyrlan flutti manninn veikan á sjúkrahús.
Þyrlan flutti manninn veikan á sjúkrahús. vísir/vilhelm
Maður nokkur veiktist hastarlega vestur á Reykhólum í gærkvöldi og taldi læknir öruggast að hann kæmist sem fyrst á sjúkrahús.

Var því kallað eftir þyrlu Landhelgisgælsunnar sem sótti manninn og flutti til Reykjavíkur, þar sem hann var lagður inn á Landsspítalann. Ferðin gekk vel, enda veður ákjósanlegt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×