Viðskipti erlent

Háskóli á Spáni kennir fjárhirðu

Finnur Thorlacius skrifar
Fjárbúskapur í fjöllunum á Spáni.
Fjárbúskapur í fjöllunum á Spáni. Matizespana
Fjárbúskapur hefur verið stundaður í fjalllendi norðausturhluta Spánar í margar aldir og fé hefur gengið þar um mun lengur, eða í 6 milljón ár. Iðnbylting síðustu alda hefur dregið verulega úr fjölda þess fjár sem þar er nú með samhliða fækkun þeirra sem gæta þeirra.

Þessu vilja Spánverjar snúa við og Háskólinn Catalonia´s School og Shepherds hefur nú kennt fjárgæslu síðastliðin sex ár. Nemendur hefja námið með mánaðarlangri bekkjarsetu og fer kennslan fram á fremur afskektum stað í Pyrenníafjöllunum. Síðan tekur við verkleg kennsla með reyndum fjárgæslumönnum og eftir það útskrifast nemendur.

Um 80% þeirra sem hefja þetta nám klára það og um 60% ráða sig sem fjárgæslumenn  í kjölfarið. Þeir sem ráða sig með fríu húsnæði og fæði fá þó ekki nema ríflega 100.000 króna mánaðarlaun, en 140-190.000 krónur ef þeir búa í eigin húsnæði. Þokkalega reyndur fjárhirðir sem gætir mikils magns fjár á sumrin geta þó borið úr bítum ríflega 300.000 krónur á mánuði. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×