Bíó og sjónvarp

Hasar í Villta Vestrinu

Samúel Karl Ólason skrifar
Fyrsta stiklan hefur verið birt fyrir myndina The Magnificent SevenDenzel Washington er í aðalhlutverki myndarinnar auk þeirra Chris Pratt og Ethan Hawk. Myndin er endurgerð af mynd sem bar sama nafn og var gefin út árið 1960.

Leikstjóri myndarinnar er Antoine Fuqua, sem er hvað þekktastur fyrir að hafa leikstýrt Training Day.

Í raun er um að ræða endurgerð af endurgerð af japönsku myndinni Seven Samurai frá 1954. Myndin verður frumsýnd í september.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×