Enski boltinn

Hart kvaddi City líklega í kvöld

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Hart eftir leik í kvöld. Kannski hans síðasta fyrir Man. City.
Hart eftir leik í kvöld. Kannski hans síðasta fyrir Man. City. vísir/getty
Stuðningsmenn Man. City stóðu þétt við bakið á Joe Hart í kvöld og hann var nánast í tárum í leikslok.

Man. City vann þá 1-0 sigur á Steaua í Meistaradeildinni og tryggði sér sæti í riðlakeppninni.

Hart hefur setið á bekknum í vetur en fékk að spila í kvöld og það sem meira er þá var hann fyrirliði. Pep Guardiola, stjóri City, var augljóslega að leyfa honum að kveðja.

Stuðningsmenn fögnuðu í hvert skipti sem hann kom við boltann og sungu fyrir hann í leikslok. Þá komst hann við.

Eftir leikinn virtist Hart ekki vilja fara þó svo það sé ekkert í kortunum að hann fái að spila meira.

„Ég og stjórinn erum að taka á þessu máli eins og menn og munum ná einhverri niðurstöðu,“ sagði Hart.

Claudio Bravo er á leið til félagsins og City er sagt vera til í að lána Hart.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×