Enski boltinn

Hart farinn til Torino

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Hart kveður í lokaleik sínum með City.
Hart kveður í lokaleik sínum með City. vísir/getty
Man. City staðfesti nú rétt áðan að enski landsliðsmarkvörðurinn Joe Hart væri farinn til Ítalíu.

Enska félagið lánar hann til Torino út þessa leiktíð.

Hart var ekki inn í plönum Pep Guardiola, stjóra Man. City, sem nældi sér í Claudio Bravo frá Barcelona til þess að taka stöðu Hart.

Það hefur legið í loftinu í þó nokkurn tíma að Hart væri á förum og það hefur nú verið staðfest.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×