Körfubolti

Hart barist í Los Angeles á miðnætti | Allt í beinni á Sportinu

Anton Ingi Leifsson skrifar
Úr leik liðanna.
Úr leik liðanna. vísir/getty
Það verður hart barist í NBA-körfuboltanum í nótt, en LA Clippers og San Antonio Spurs mætast þá í átta liða úrslitum NBA-deildarinnar. Leikurinn er oddaleikur milli liðanna.

Clippers gerði vel í fyrsta leik og komst yfir, en San Antonio vann næstu tvo leiki. Clippers vann svo leik númer fjögur og staðan jöfn 2-2.

Spurs vann leik fimm, en Clippers tryggði sér oddaleik eftir sigur í leik liðanna í fyrradag.

Þessi rimma er sú eina sem fer í oddaleik, en staðan er 3-3. Leikurinn hefst á miðnætti og er sýndur í þráðbeinni á Stöð 2 Sport 3.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×