Glamour

Harry Styles sýnir loksins nýju hárgreiðsluna

Ritstjórn skrifar
Myndir/Getty
Harry Styles, söngvari í One Direction, klippti á dögunum af sér löngu lokkana sem hann hefur safnað sér í gegnum árin. Það ætlaði allt um koll að keyra þegar hann birti mynd á samfélagsmiðlum þar sem hann hélt á taglinu sínu í höndunum þegar það var búið að klippa það af. Hann gaf hárið til góðgerðasamtaka sem gera hárkollur handa börnum sem hafa misst hárið vegna krabbameins. 

Það verður að segjast að þrátt fyrir að hann hafi verið flottur með síða hárið þá er hann alls ekki síðri með stutt hár. 






×