Lífið

Harrison Ford aftur Deckard

Snýr aftur Harrison Ford lék aðalhlutverkið í Blade Runner og mun snúa aftur í framhaldsmynd.nordicphotos/Getty
Snýr aftur Harrison Ford lék aðalhlutverkið í Blade Runner og mun snúa aftur í framhaldsmynd.nordicphotos/Getty
Leikarinn Harrison Ford mun snúa aftur í framhaldsmynd af Blade Runner, sem kom út árið 1982. Ford lék einmitt aðalhlutverkið í myndinni sem hefur fest sig í sessi á meðal áhugafólks um svokallaðar Sci-Fi-myndir. Ford verður áfram í hlutverki Ricks Deckard, en persónan kom fyrst fram í skáldsögunni Do Androids Dream of Electric Sheep. Ridley Scott, sem leikstýrði fyrri myndinni, mun vera með í framleiðsluteymi myndarinnar en framhaldsmyndinni verður leikstýrt af Denis Villeneuve, sem gerði myndina Prisoners. Áætlað er að tökur á framhaldsmyndinni hefjist á næsta ári.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×