Innlent

Harrison flugkappi heppinn að sleppa með skrekkinn

Heimir Már Pétursson skrifar
Stórleikarinn Harrison Ford slapp með skrekkinn þegar hann nauðlenti gamalli flugvél sinni á golfvelli í Los Angeles seinnipartinn í gær. Hann er mikill flugáhugamaður og hefur nokkrum sinnum lent Boeing þotu sinni hér á landi.

Harrison Ford sem er þaulvanur flugmaður hafði nýtekið á loft á gamalli einshreyfils flugvél sinni frá nálægum flugvelli við golfvöllinn þegar hreyfillinn missti afl. Hér má heyra hasarhetjuna pollrólega tilkynna um ástandið til flugumferðarstjórnar.

„53178, hreyfilbilun, sný við nú þegar,“ tilkynnir Harrison í talstöðina og flugumferðarstjóri tilkynnir honum að honum sé heimilt að lenda strax. „Ég fer á braut þrjú,“ tilkynnir Harrison þá og flugumferðarstjóri staðfestir heimild hans til að lenda á þeirri flugbraut.

Eins og þarna kom fram fékk Harrison Ford heimild til að lenda á tiltekinni flugbraut en hann náði ekki alla leið og lenti flugvélinni sem er frá seinni heimsstyrjöldinni á golfvellinum. Hann er ekki talinn alvarlega slasaður eftir óhappið.

„Flugmaðurinn tilkynnti að hann hefði misst afl á hreyfli og hann ætlaði að reyna að snúa aftur til baka til flugvallarins. Það lítur út fyrir að flugvélin hafi höggvið topp af tré áður en hún hafnaði á golfvellinum,“ sagði Patrick Jones fulltrúi rannsóknarnefndar samgönguslysa í Los Angeles.

Talsmaður leikarans segir meiðsl hans hafa verið minniháttar og að hann muni ná sér að fullu. Hann er mikill flugáhugamaður og hefur m.a. nokkrum sinnum millilent Boeing þotu sinni hér á landi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×