Leikjavísir

Harrington og McGregor eru vondu karlar Call of Duty

Samúel Karl Ólason skrifar
Ný stikla fyrir Call of Duty: Infinite Warfare var birt í gær. Þar má Game of Thrones leikarann Kit Harrington í hlutverki Aðmírálsins Salen Kotch. Þar má einnig sjá Conor McGregor bregða fyrir í hlutverki Kapteinsins Bradley Fillion.

Þetta er langt frá því að vera í fyrsta sinn sem frægir einstaklingar taka þátt í söguheimi Call of Duty. Sem dæmi lék Kevin Spacey í Advanced Warfare. Þá hafa Ed Harris og Ron Perlman einnig látið sjá sig auk margra annarra.

Þrátt fyrir að McGregor sé ekki lengi í mynd í stiklunni nær hann þó að koma inn einu höggi.

Að þessu sinni er Call of Duty á leiðinni út í geim og virðist stór hluti leiksins gerast þar og á öðrum plánetum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×