Íslenski boltinn

Harpa: Viljum alltaf bæta okkur

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Harpa með verðlaunin.
Harpa með verðlaunin. Vísir/Valli
Harpa Þorsteinsdóttir, framherji Íslands- og bikarmeistara Stjörnunnar, hefur verið dugleg að sanka að sér hvers kyns verðlaun og viðurkenningum á undanförnum árum.

Í dag bættust þrenn verðlaun í sarpinn þegar KSÍ gerði Pepsi-deild kvenna upp með viðhöfn í höfuðstöðvum Ölgerðarinnar.

Harpa var kosin besti leikmaðurinn, var í úrvalsliðinu og fékk verðlaun fyrir flottasta mark sumarsins sem hún skoraði gegn Aftureldingu. Harpa var einnig langmarkahæsti leikmaður deildarinnar með 27 mörk í 18 leikjum.

Aðspurð hvort hún hefði pláss fyrir öll þessi verðlaun sagði Harpa: „Ég þarf að fara að finna mér íbúð með auka herbergi til að geyma þetta allt.

„Nei, nei, ég kem þessu einhvers staðar fyrir,“ sagði Harpa sem var að vonum ánægð með uppskeru dagsins, en kom þetta henni á óvart?

„Nei, svo sem ekki. Þetta kom kannski ekki óvart, en ég er engu að síður mjög þakklát og stolt af þessum viðurkenningum. Það er alltaf gaman að fá viðurkenningu fyrir það sem vel er gert,“ sagði markadrottningin.

Sumarið hjá Stjörnunni var draumi líkast, en liðið hafði mikla yfirburði í Pepsi-deildinni og tryggði sér bikarmeistaratitilinn með 4-0 sigri á Selfossi í úrslitaleik. Hvað telur Harpa að liggi þessum frábæra árangri til grundvallar?

„Stöðugleiki, samkeppni og metnaður hjá liðinu. Við finnum alltaf hluti sem við getum bætt okkur í og viljum stöðugt vera að bæta okkur. Það er kannski lykilinn að þessu; að sitja ekki við sáttar.“

Tímabilið er þó ekki búið hjá Stjörnunni, en liðið mætir Zvezda 2005 frá Rússlandi í 32-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Fyrri leikurinn fer fram á Samsung-vellinum í Garðabæ 8. október og sá seinni í Rússlandi 16. sama mánaðar. Harpa segir að Stjörnustúlkur fari hvergi bangnar inn í það einvígi.

„Við eigum góða möguleika á að ná góðum úrslitum á móti þessu liði og við förum af fullum krafti inn í það verkefni og vonust til að komast áfram í næstu umferð,“ sagði Harpa, en verður hún áfram í herbúðum Stjörnunnar?

„Ég er samningsbundin Stjörnunni og verð heima í bili. En ef eitthvað spennandi kemur upp mun ég skoða það.“

Stjörnustúlkur áttu frábært tímabil.Vísir/Andri Marinó

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×