Fótbolti

Harpa: Komið gott af rússneskum liðum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Harpa Þorsteinsdóttir.
Harpa Þorsteinsdóttir. Vísir/Andri Marinó
Markadrottningin Harpa Þorsteinsdóttir segir að Stjörnukonur séu reynslunni ríkari frá því í fyrra en annað árið í röð mæta Garðbæinga rússneska liðinu Zvezda 2005 í 32-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu.

Zvezda fór illa með Stjörnuna í fyrra og vann einvígið 8-3 samanlagt. Harpa vonast að sjálfsögðu eftir betri úrslitum í ár.

"Núna vitum við nákvæmlega við hverju er að búast. Við erum bæði búnar að skoða myndbönd af þeim og leikina frá því í fyrra," sagði Harpa á æfingu Stjörnuliðsins í gær.

"Þær voru svo að spila bikarúrslitaleik fyrir stuttu síðan þar sem þær tefldu væntanlega fram sínu sterkasta liði þannig við vitum við hverju er að búast og hverjir veikleikar þeirra eru.

"Við eigum alveg að vera klárar í þennan leik," bætti Harpa við en tímabilið í Rússlandi stendur enn yfir. Zvezda er með eins stigs forystu á toppi rússnesku úrvalsdeildarinnar þegar fjórar umferðir eru eftir og þá vann liðið Kubanochka í bikarúrslitaleiknum.

En hvað getur Stjörnuliðið bætt frá leikjunum í fyrra?

"Við megum ekki gera mistök. Við vorum alveg inni í leikjunum í fyrra en við gerðum ódýr mistök, gáfum mörk og klúðrum góðum stöðum í sókninni. Við þurfum að vera einbeittar í 90 mínútur og spila góðan varnarleik," sagði Harpa sem segir leikformið á Stjörnuliðinu vera ágætt þrátt fyrir að Íslandsmótið hafi klárast fyrir tæpum mánuði síðan.

"Það er gott. Við erum búnar að spila æfingaleiki við U-17 og U-19 ára landsliðin, strákana í Stjörnunni og vinkonur okkar í Breiðabliki. Svo erum við með leikmenn sem voru í landsliðsverkefnum."

Þetta er fjórða árið í röð sem íslensk lið mæta liðum frá Rússlandi í Meistaradeild Evrópu en í öll þrjú skiptin sem Stjarnan hefur komist í Meistaradeildina hefur liðið dregist á móti rússneskum liðum. Harpa segir að þetta sé orðið fínt í bili.

"Jú, klárlega. Þetta er komið gott. Við verðum að vinna þær og komast áfram," sagði Harpa að endingu.

Leikur Stjörnunnar og Zvezda hefst klukkan 19:00 en hægt verður að fylgjast með leiknum í beinni textalýsingu á Vísi.


Tengdar fréttir

Ásgerður: Þurfum að taka fast á henni

Ásgerður Stefanía Baldursdóttir, fyrirliði Stjörnunnar, segir að Garðbæingar séu betur í stakk búnir til að mæta rússneska liðinu Zvezda 2005 í 32-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu en í fyrra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×