Fótbolti

Harpa: Erfiðasti leikur sem við höfum spilað saman sem lið

Elías Orri Njarðarson skrifar
Harpa Þorsteinsdóttir eftir leikinn í kvöld.
Harpa Þorsteinsdóttir eftir leikinn í kvöld. Vísir/Getty
Harpa Þorsteinsdóttir var svekkt eftir 3-0 tap á móti Austurríki í kvöld, á Evrópumótinu sem fer fram í Hollandi. Ísland hafði tapað báðum leikjunum sínum í riðlinum fyrir þennan leik og hún sagði að undirbúningurinn fyrir leikinn í kvöld hafði verið erfiður.

„Undirbúningurinn fyrir þennan leik er búinn að vera erfiður og andlega hefur þetta verið örugglega erfiðasti leikur sem við höfum spilað saman sem lið. Við fáum á okkur klaufalegt mark og við vorum sjálfar búnar að vera í sénsum. Þetta er svolítið þungt högg og við náðum ekki að stíga upp eftir það,“ sagði Harpa Þorsteinsdóttir í samtali við Eddu Sif Pálsdóttur á RÚV eftir tapið gegn Austurríki í kvöld.

Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari Íslands, myndaði hring með leikmönnum eftir leikinn og stappaði í þær stálinu. „Hann var bara að segja sannleikann. Við gerðum allt sem við gátum, við erum búnar að leggja okkur allar fram, við erum margar hverjar búnar að stíga algjörlega útfyrir allan þægindarramma og höfum lagt allt í sölurnar og það er bara ekki hægt að kvarta yfir því. Þetta var bara ekki okkar mót og það er bara þannig. Við gerðum allt og við megum ekki hengja okkur á því,“ sagði Harpa.

Margt gott var að finna í leik Íslands á mótinu, leikurinn á móti Frakklandi var mjög góður en hvað er það sem er að klikka hjá liðinu?

„Mér fannst Frakkaleikurinn óaðfinnanlegur að okkar hálfu, það er ekkert þar sem við hefðum getað gert öðruvísi eða við hefðum getað gert betur. Það er svo erfitt núna að segja nákvæmlega hvað það er sem klikkar en við verðum klárlega að halda betur í boltann og spila betur sóknarlega. Það er bara þannig. Liðið er búið að taka framförum en við erum ekki komnar lengra, við erum búnar að gera allt sem að við gátum og við göngum hérna frá þessu móti gríðarlega stoltar af því sem að við lögum fram,“ sagði Harpa Þorsteinsdóttir, framherji Íslands.


Tengdar fréttir

Stelpurnar okkar ætla að njóta síðustu stundanna á EM

Stelpurnar okkar mæta Austurríki í kvöld í lokaleik sínum á Evrópumótinu 2017. Sama hvað gerist í Kastalanum í Rotterdam – íslenska liðið er á heimleið. Stelpurnar ætla sér sigur og að yfirgefa Holland með stolti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×