Innlent

Harmar að þrýstiöfl hafi áhrif á stefnu Pírata

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Erna Ýr Öldudóttir fráfarandi formaður framkvæmdaráðs Pírata.
Erna Ýr Öldudóttir fráfarandi formaður framkvæmdaráðs Pírata. Mynd/Heiða Halls
Erna Ýr Öldudóttir, fyrrum formaður framkvæmdaráðs Pírata, segir að samþykkt stefna Pírata varðandi nýja stjórnarskrá passi illa almennum stefnumálum Píratahreyfingarinnar og rími betur við áherslur Lýðræðisvaktarinnar og Dögunar. Segir hún það áhyggjuefni að þrýstihópar séu í aðstöðu til þess að misnota það ferli sem Píratar noti til þess að móta stefnu sína.

Þetta kemur fram í grein hennar, Pírötum rænt, sem birtist á Vísi í dag. Erna Ýr vísar til tillögu sem samþykkt var í kosningakerfi Pírata þar sem ályktað var að kæmist flokkurinn til valda myndi hann beita sér fyrir því að Alþingi samþykkti, strax á næsta þingi, nýja stjórnarskrá út frá tillögum stjórnlagaráðs sem lagðar voru fram árið 2011.

„Tillagan var lögð óvænt fram og var bæði vanreifuð og illa kynnt og málið í heild var hið undarlegasta. Hún passar illa við almenn stefnumál Píratahreyfingarinnar en athyglivert er að hún passar þeim mun betur við markmið Dögunar og Lýðræðisvaktarinnar, smáflokka sem náðu ekki inn á þing í kosningunum 2013,“ segir í grein Ernu Ýrar

Sjá einnig: Formaður framkvæmdaráðs Pírata ekki í Panama-skjölunum og segir því af sér

Segir Erna Ýr að aðalfundur Pírata hafi verið „vélaður“ til þess að samþykkja ályktunina og að varhugavert sé að þrýstihópar séu komnir í þá aðstoðu að misnota það ferli sem Píratar noti til að móta stefnu sína.

„Það er mikið áhyggjuefni að þrýstihópar eru komnir í þá aðstöðu að misnota beint lýðræði og þá lýðræðislegu ferla sem Píratar eru enn með í þróun innan flokksins. Fullnusta þeirra er sérstaklega aðkallandi í ljósi fylgisaukningar og þeirrar auknu ábyrgðar sem henni fylgir,“ segir Erna Ýr.

Útilokar að styðja samþykkta stefnu Pírata í stjórnarskrármálinu

Erna segir að þetta ferli hafi truflað sig og segir hún útilokað að hún geti stutt samþykkta stefnu Pírata í stjórnarskrármálinu. Í lok síðasta mánaðar hætti Erna Ýr trúnaðarstörfum fyrir flokkinn og nefndi hún málefnanleg ágreining sem eina af ástæðunum fyrir því. Í grein sinni segir Erna Ýr að hún hafi átt þann kost einan að segja sig frá trúnaðarstörfum innan flokksins.

„Viðleitni mín til þess að opna umræðuna og ljá þeim flokksmönnum rödd sem hafa efasemdir hefur kostað mig ósanngjarnar ávirðingar og gríðarleg leiðindi bæði opinberlega og innan flokks. Ég hef takmarkað svigrúm til að eiga stöðugt við ærulausan áróður. Ég sinni fullri vinnu, til viðbótar við það hella upp á kaffi og skúra félagsheimili Pírata eins og komist var niðrandi að orði um þau annars ágætu störf, í þeim tilgangi að takmarka tjáningarfrelsi mitt og gera lítið úr lýðræðislegu umboði mínu innan flokksins. Þetta er út úr öllu korti og í andstöðu við allt það sem Píratar standa fyrir,“ segir Erna Ýr.

Lesa má grein Ernu Ýrar í heild sinni hér.


Tengdar fréttir

Sjálfstæðismenn og Píratar eru jafnir

Píratar og Sjálfstæðisflokkurinn eru stærstu flokkarnir. Vinstri græn með fjórtán prósenta fylgi. Samfylkingin og Framsóknarflokkurinn jafnstórir. Prófessor í stjórnmálafræði segir greinilegt að bæði Sjálfstæðisflokkurinn og Vins




Fleiri fréttir

Sjá meira


×