Hárkolla Russell Crowe kostaði milljón 27. mars 2015 11:21
Ragna Fossberg er einn farsælasti gervasmiður landsins og margverðlaunuð fyrir störf sín. Hún sá um öll gervi Spaugstofunnar í nær tvo áratugi, og hefur þar fyrir utan farðað fyrir fjölda áramótaskaupa, sjónvarpsþátta og hátt í þrjátíu bíómyndir. Hún kynntist hárkollugerð þegar hún var í námi í danmörku árið 1976 og hefur gert þær ófáar síðan. Og þessar kollur eiga lítið skylt við akrýldótið sem maður verslar á slikk fyrir öskudaginn. Það tekur auðveldlega viku að búa til eina slíka, og þær geta kostað skildinginn. Fáar eru þó líklega jafn íburðarmiklar og kolla sem Russell Crowe bar í myndinni Noah, en hún var gerð úr hans eigin hári. Ragna vann við myndina og þurfti að gera við þessa undrasmíð, sem kostaði litla milljón. ,,Og það þykir nú ansi gott fyrir eina kollu. Þannig að ég sat með hana í klofinu og þorði ekki einu sinni að leggja hana frá mér í bílsætið þannig að hún myndi ekki krumpast. Nógu dýrt var þetta,” segir Ragna hlæjandi. Verðmiðinn verður skiljanlegri þegar Ragna útskýrir hvernig slíkar kollur eru unnar. Hárin eru hnýtt í grunninn fjögur til sex í einu yfir stærstan hluta kollunnar, en eitt og eitt í nær andlitinu. ,,En þessi kolla er öll búin til með einu og einu hári, frá hnakka að enni. Ég hef aldrei séð svona flotta kollu,” segir Ragna, sem giskar á að þetta hafi tekið heillangan tíma. ,,Mánuður, tveir, enda kostar stykkið milljón." Ragna verður í viðtali í Fókus á Stöð 2 á laugardagskvöld, en brot úr þættinum má sjá hér að ofan.
Tengdar fréttir Með þungvopnuðum mótorhjólamönnum og berbrjósta konum í Kansas Tökumaðurinn Bergsteinn Björgúlsson vinnur nú að heimildamynd hans og ljósmyndarans Spessa Hallbjörnssonar um mótorhjólamenningu í Bandaríkjunum. Þeir fóru til Kansas í tökur en Besti eins og hann er jafnan kallaður segir það hafa verið eins og að fara aftur í tímann. 20. mars 2015 11:19 Fangaklefi á barnaheimili vakti grunsemdir Upphaf Breiðuvíkurmálsins má rekja til þess þegar kvikmyndatökumaðurinn Bergsteinn Björgúlfsson frétti frá vini sínum af tilvist steypts klefa í kjallara hótelsins á Breiðavík, sem eitt sinn var vistheimili fyrir börn. 25. mars 2015 11:34 Mest lesið Æðisleg tilfinning að þurfa ekki að geðjast fólki Tónlist „Tíu ár en enginn hringur“ Makamál Hjólhýsabyggðin á Laugarvatni og Húsið á Eyrarbakka Lífið „Þetta var svolítið biblíuleg mynd“ Lífið Blendnar tilfinningar á frumsýningu Oppenheimer í Japan Bíó og sjónvarp Páll Óskar genginn í það heilaga: „Besti dagur lífs okkar“ Lífið Líkt við apa og klappað eins og hundi Lífið Víkingur Heiðar á smáskrifborðstónleikum Tónlist Veltir fyrir sér hvort hann sé dottinn úr tísku Lífið Krabbameinið sem týndist: „Fyrst sagði ég bara fokk!“ Áskorun Fleiri fréttir Hjólhýsabyggðin á Laugarvatni og Húsið á Eyrarbakka „Þetta var svolítið biblíuleg mynd“ Bein útsending: Heimir Guðjóns og Höddi Magg í einvígi aldarinnar Kappakstur milli Hjálmars og Magneu Tískan sýndi trúnaðarbrest í hruninu Páll Óskar genginn í það heilaga: „Besti dagur lífs okkar“ Kastast í kekki milli Carragher og kærastans Veltir fyrir sér hvort hann sé dottinn úr tísku Óhefðbundinn páskamatseðill að hætti Sigurðar Laufdal á OTO Knattspyrnufólk og bransastjörnur fjölmenntu í bíó Líkt við apa og klappað eins og hundi Barnalán hjá Batman Svar við spurningu lesanda: Hvað má fróa sér oft í viku? „Ég get ekki gert upp á milli barna“ Þingforseti, borgarfulltrúi og Frikki Dór í fjölmennu útgáfuhófi Handboltagoðsögn selur glæsihús í Garðabæ Bein útsending: Veglegir vinningar í páskabingói Blökastsins Ætlaði sér alltaf að verða leikari Júlí Heiðar og Þórdís eiga von á stelpu: „Djöfull var ég tekin“ Sacha Baron Cohen æfareiður út í Rebel Wilson Chess After Dark strákarnir boða til einvígis aldarinnar Arnar Grant og Vítalía á kaffihúsi og RÚV þrenna í miðborginni Fjandinn laus þegar málshættina vantar Palli snöggreiddist þegar hann var sakaður um að hafa verið tjokkó Undurfagrar páskaskreytingar Keypti íbúðina af huggulegustu hommum landsins Myndaveisla: Bjarni Ben skálaði fyrir einstökum Audi Eyþór stillti Eivøru upp við vegg og lét hana flytja lagið Running Up That Hill „Harry Klein“ er látinn Stjörnulífið: Hlustendaverðlaunin, ferðalög og afmælisgleði Sjá meira
Með þungvopnuðum mótorhjólamönnum og berbrjósta konum í Kansas Tökumaðurinn Bergsteinn Björgúlsson vinnur nú að heimildamynd hans og ljósmyndarans Spessa Hallbjörnssonar um mótorhjólamenningu í Bandaríkjunum. Þeir fóru til Kansas í tökur en Besti eins og hann er jafnan kallaður segir það hafa verið eins og að fara aftur í tímann. 20. mars 2015 11:19
Fangaklefi á barnaheimili vakti grunsemdir Upphaf Breiðuvíkurmálsins má rekja til þess þegar kvikmyndatökumaðurinn Bergsteinn Björgúlfsson frétti frá vini sínum af tilvist steypts klefa í kjallara hótelsins á Breiðavík, sem eitt sinn var vistheimili fyrir börn. 25. mars 2015 11:34