Innlent

Harður árekstur við Hringbraut

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Frá vettvangi í dag.
Frá vettvangi í dag. Vísir/Kristjana
Flytja þurfti einn á slysadeild og draga bíl burtu með krana eftir árekstur á gatnamótum Hringbrautar og Njarðargötu um tvöleytið í dag.

Einn sjúkrabíll var sendur á staðinn auk lögreglubíls. Samkvæmt upplýsingum frá vakthafandi lækni á slysadeild eru meiðsli þess sem fluttur var á sjúkrahús ekki alvarleg.

Tildrög árekstursins liggja ekki fyrir.

Fyrr í dag voru hins vegar umferðarljósin á umræddum gatnamótum í ólagi. Stafaði bilunin af sveiflu í netinu hjá Orkuveitu Reykjavíkur samkvæmt upplýsingum frá Reykjavíkurborg. Duttu ljósin út skamma stund en ræstu sig svo aftur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×