Innlent

Harður árekstur í nótt

Jakob Bjarnar skrifar
Í öðrum bílnum, sem var smábíll af minnstu gerð, voru 3 ungmenni, ökumaður var einn í hinum bílnum.
Í öðrum bílnum, sem var smábíll af minnstu gerð, voru 3 ungmenni, ökumaður var einn í hinum bílnum.
Tveir bílar skullu saman á gatnamótum Hafnafjarðarvegar og Vífilstaðavegar í nótt klukkan korter í þrjú. Í öðrum bílnum, sem var smábíll af minnstu gerð, voru 3 ungmenni, ökumaður var einn í hinum bílnum. Allir voru fluttir á slysadeild og munu vera eitthvað slasaðir, en óljósar fréttir eru um hversu alvarleg meiðsl eru.

Í smábílnum fundust fíkniefni og er ökumaður hans grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna.  Bæði ökutækin þurfti að fjarlægja af vettvangi með dráttarbílum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×