Innlent

Harður árekstur á Suðurlandsvegi

Samúel Karl Ólason skrifar
Áreksturinn varð skammt austur af Hveragerði.
Áreksturinn varð skammt austur af Hveragerði. Vísir/Vilhelm
Harður árekstur varð á Suðurlandsvegi skammt austur af Hveragerði í kvöld. Brunavarnir Árnessýslu voru kallaðar út og þurfti að klippa einn út úr bíl. Jeppi og fólksbíll skullu saman en ökumaður fólksbílsins var fluttur til Reykjavíkur. Farþegar jeppans meiddust lítið.

Suðurlandsvegi hefur verið lokað frá Hveragerði austur að Biskupstungnabraut. Umferðinni hefur verið beint niður Eyrarbakkaveg.

Uppfært 21:10

Búið er að opna veginn aftur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×