Innlent

Harður árekstur á Reykjanesbrautinni

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hér má sjá mynd frá vettvangi.
Hér má sjá mynd frá vettvangi. mynd/aðsend
Nokkuð alvarlegt umferðaróhapp átti sér stað á Reykjanesbrautinni á þriðja tímanum í dag þegar tveir fólksbílar lentu saman.

Um er að ræða einn lítinn fólksbíl og jeppabifreið en slysið átti sér stað við bílasölu Toyota í Reykjanesbæ.

Tveir sjúkrabílar voru sendir á vettvang en samkvæmt þeim upplýsingum sem fréttastofa hefur fengið var aðeins ökumaðurinn í öðrum bílnum og þrír í hinum.

Ekki liggur ljóst fyrir hvort slys hafi orðið á fólki að svo stöddu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×