Innlent

Harður árekstur á Akureyri

Samúel Karl Ólason skrifar
Mynd/Þorlákur
Harður árekstur varð á Akureyri á öðrum tímanum í dag. Þar var sendiferðabíl ekið í veg fyrir jeppa á Austursíðu.

Engin slys urðu á fólki í árekstrinum samkvæmt lögreglunni á Akureyri, þrátt fyrir að um mikið högg hafi verið að ræða. Annað hjól jeppans féll undan bílnum og flytja þurfti báða bíla af vettvangi.

Mikil hálka er á Akureyri en lögreglan telur að hún hafi ekki haft áhrif á aðdraganda árekstursins.

Mynd/Þorlákur
Mynd/þorlákur



Fleiri fréttir

Sjá meira


×