Erlent

Harðlega gagnrýndur fyrir að draga fallna hermenn inn í stjórnmálin

Samúel Karl Ólason skrifar
Ummælin vöktu mikla reiði og hafa meðal annars starfsmenn bæði Barack Obama og George Bush, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, sakað Trump um lygar og að reyna að nýta sér syrgjandi fjölskyldur.
Ummælin vöktu mikla reiði og hafa meðal annars starfsmenn bæði Barack Obama og George Bush, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, sakað Trump um lygar og að reyna að nýta sér syrgjandi fjölskyldur. Vísir/Getty
Donald Trump hélt því fram í gær að hann, einn forseta, hringdi í fjölskyldur allra bandarískra hermanna sem hafa fallið í bardögum. Ummælin vöktu mikla reiði og hafa meðal annars starfsmenn bæði Barack Obama og George Bush, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, sakað Trump um lygar og að reyna að nýta sér syrgjandi fjölskyldur.

„Ég held ég hafi hringt í fjölskyldur allra sem hafa dáið,“ sagði Trump á blaðamannafundi í gær þegar hann var spurður af hverju hann hefði ekki tjáð sig um fall fjögurra hermanna í umsátri í Níger fyrir um tveimur vikum. Hann sagðist eiga eftir að senda fjölskyldum þeirra bréf og hringja í þær. Þá varði hann töfina með því að segja aðra forseta ekki hafa gert hið sama.

„Ef þið skoðið Obama og aðra forseta, þá hringdu flestir þeirra ekki. Margir þeirra hringdu ekki. Ég vil hringja þegar það er við hæfi, þegar ég get það.“

Politifact segir þessi ummæli Trump vera „misvísandi“ og að engar vísbendingar hafi fundist um að aðrir forsetar hefðu gert minna en Trump í þessum málum.

Samkvæmt frétt Washington Post virtist hann hins vegar draga í land skömmu seinna og sagði að Obama hefði „líklega“ sent bréf, „stundum“.



Í viðtali á útvarpsstöð í dag sagði Trump einnig að hershöfðinginn og núverandi starfsmannastjóri Trump, John Kelly, hefði ekki fengið símtal frá Obama þegar sonur hans féll í Afganistan árið 2010.

Þar að auki kenndi hann CNN um ummæli sín, fyrir að hafa spurt hann út í ummælaleysið varðandi hermennina fjóra sem dóu í Níger.

„Þetta voru, aftur, falskar fréttir CNN. Ég meina, þeir eru bara falsarar,“ sagði Trump samkvæmt frétt Politico.



Minnst tvær fjölskyldur sem Trump hefur ekki haft samband við

Blaðamenn AP fréttaveitunnar hafa hins vegar fundið minnst tvær fjölskyldur hermanna sem hafa fallið í forsetatíð Trump sem hafa hvorki fengið símtal né bréf. Varðandi son John Kelly, þá hitti Obama Kelly og fjölskyldu hans á morgunverði sem haldinn var fyrir fjölskyldur fallinna hermanna.



Ekkja Christopher Michael Harris sem dó í Afganistan í ágúst, segir að til hafi staðið að hún fengi símtal frá Hvíta húsinu. Hins vegar hafi ekki orðið af því og fékk hún ekki heldur bréf. Fjölskyldan hitti hins vegar Mike Pence, varaforseta, þegar þau tóku á móti líki Harris.

Sömu sögu er að segja af fjölskyldu hermannsins Etienne J. Murphy sem dó í Sýrlandi í maí þegar brynvarinn bíll sem hann var í valt. Þau segjast hvorki hafa fengið bréf né símtal og telja það hafa verið vegna þess að hann hafi dáið af slysförum. Móðir Murphy segir að herinn hafi sagt að þau myndu fá bréf frá Hvíta húsinu fyrir um fimm mánuðum. Það hafi þó ekki borist.

Þá sendi hún Trump bréf fyrir um sex vikum og sagði að fjölskyldan væri enn í sárum vegna dauða Murphy. Ekkert svar hefur borist.

Engar reglur um samskipti

Engar reglur eru til staðar um að forsetum beri að setja sig í samband við fjölskyldur fallinna hermanna, en það hafa þeir þó oft gert. Um 6.900 bandarískir hermenn hafa fallið í stríðum frá september 2011. Frá því að Trump tók við embætti hafa um 24 hermenn fallið.

Talsmaður George Bush sagði AP að frá 2004 til 2007 hefðu um 800 hermenn fallið á ári. Bush hefði sent fjölskyldum allra þeirra bréf og hitt hundruð ef ekki þúsundir þeirra.

Eric Holder, fyrrverandi dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, fylgdi Barack Obama til herstöðvar í Bandaríkjunum árið 2009 til að taka á móti líkum 18 hermanna sem dóu í Afganistan og hitta fjölskyldur þeirra.

Hann segir Trump að hætta að ljúga.

Fyrrverandi hershöfðinginn Martin Demspey tísti einnig um málið en hann var yfirhershöfðingi Bandaríkjanna á árunum 2011 til 2015.

Hann segir að Obama, Bush og eiginkonur þeirra hefðu unnið þreytulaust fyrir fjölskyldur fallinna hermanna. Þá virtist hann gefa í skyn að mál sem þessi ættu ekki að koma stjórnmálum við.

Ben Rhodes, fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafi Obama, segir lygi Trump vera viðurstyggilega og vanvirðingu jafnvel miðað við þá staðla sem Trump hafi sett.

Þá bendir hann á að Obama hafi aldrei veist að fjölskyldu dáins hermanns.

Þá tísti David Frum, fyrrverandi ræðuhöfundur Bush, mynd af honum heimsækja hermenn á sjúkrahús. Myndin fylgir grein fyrrverandi talsmanns forsetans sem fjallar um það þegar móðir hermanns sem var við það að deyja öskraði á Bush.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×