Lífið

Hard Rock réði 70 rokkstjörnur á staðnum - Myndband

Stefán Árni Pálsson skrifar
Veitingastaðurinn Hard Rock opnar í Lækjargötu í lok október. Nýverið fóru fram áheyrnarprufur þar sem um 300 manns komu til að sækja um vinnu á staðnum. Mikil stemmning var á Hard Rock þennan dag eins og meðfylgjandi myndband sýnir.

,,Það sótti fólk um hjá okkur og kom alls staðar að úr heiminum. Ég held að það hafi verið yfir sautján tungumál töluð hér í húsinu þennan dag. Þetta var mjög skemmtilegur dagur og þurfti fólk að sýna sig og sanna sitt rokkeðli í áheyrnarprufunum,“ segir Styrmir Bjartur Karlsson,  sölu- og markaðsstjóri Hard Rock Café.  

„Við vildum ná öllum inná sama tíma til að klára þetta á einum degi og ráða sem flesta í öll störf. Við réðum 70 manns til starfa og það má segja að allir okkar starfsmenn séu rokkstjörnur. Þetta var smá áhætta, því ekki hefði það verið gaman að gera þetta ef fáir hefðu mætt. En við lögðum okkur alla fram að ná til sem flestra og útkoman var hreint úr sagt frábær.“

Öllu var tjaldað til þennan dag hjá Hard Rock. Ölgerðin sá um að svala þorsta, Joe and the Juice um veitingar og Gullfoss um tónlistina allan daginn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×