Handbolti

Haraldur tekur við Fylki

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Haraldur við undirskriftina í dag.
Haraldur við undirskriftina í dag. mynd/fylkir
Handknattleiksdeild Fylkis tilkynnti í dag um ráðningu á nýjum þjálfara fyrir kvennalið félagsins.

Það er Haraldur Þorvarðarson sem tekur við liðinu af Halldóri Stefáni Halldórssyni. Haraldur mun einnig þjálfa 3. flokk kvenna hjá félaginu.

Haraldur hefur síðustu tvö ár verið aðstoðarþjálfari Guðlaugs Arnarssonar hjá Fram ásamt því að vera yfirþjálfari yngri flokka hjá Fram í sex ár.

Haraldur er KR-ingur að upplagi en spilaði lengstum með Fram hér heima. Hann spilaði einnig sem atvinnumaður í Þýskalandi frá 1999 til 2004 með Düsseldorf og Stralslund.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×