Golf

Haraldur Franklín með fjögurra hogga forystu á Urriðavelli

Anton Ingi Leifsson skrifar
Haraldur Franklín á fyrsta teig í dag.
Haraldur Franklín á fyrsta teig í dag. vísir/gsi
Haraldur Franklín Magnússon, úr GR, er með fjögurra högga forskot fyrir lokahringinn á lokamótinu á Eimskipsmótaröðinni, Nýherjamótinu, sem leikið er á Urriðavelli.

Haraldur fór á kostum í dag og fékk tíu fugla á hringjunum tveimur sem leiknir voru í dag, en hann spilaði fyrri hringinn á 70 höggum. Hann bætti um betur á þeim síðari og spilaði á 67 höggum og samtals fimm undir pari.

Stefán Már Stefánsson úr GR er í öðru sætinu á einu höggi undir pari, en hann spilaði á 72 höggum annars vegar og 69 höggum hins vegar í dag.

Benedikt Sveinsson, GK, og Helgi Dan Steinsson, GG, eru báðir á einu höggi yfir pari, en lokahringurinn fer fram á morgun.

Axel Bóasson, sem er efstur í baráttunni um stigameistaratitilinn, er í fimmta sætinu á tveimur höggum yfir pari, en hann er með 5505 stig. Kristján Þór Einarsson kemur næstur á eftir Axeli, en hann er með 4387 stig á mótaröðinni. Kristján Þór er í 34. sæti á sautján höggum yfir pari.

Topp tíu eftir hringina tvo:

1. Haraldur Franklín Magnús, GR 137 högg (70-67) -5

2. Stefán Már Stefánsson, GR 141 högg (72-69) -1

3.-4. Benedikt Sveinsson, GK 143 högg (76-67) 143 +1

3.-4. Helgi Dan Steinsson, GG 143 högg (70-73) +1

5. Axel Bóasson, GK 144 högg (70-74) +2

6.-8. Andri Már Óskarsson, GHR 146 högg (73-73) +4

6.-8. Sigurþór Jónsson, GK 146 högg (70-76) + 4

6.-8. Theodór Emil Karlsson, GM 146 högg ( 72-74) +4

9.-11. Gísli Þór Þórðarson, GR 147 högg (71-76) +5

9.-11. Aron Snær Júlíusson, GKG 147 högg (78-69) +5

9.-11. Hákon Harðarson, GR 147 högg (72-75) + 5




Fleiri fréttir

Sjá meira


×