Golf

Haraldur: Öll bein í líkamanum skulfu af stressi

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Haraldur Franklín Magnús braut í dag blað í íslenskri golfsögu þegar hann spilaði fyrstur íslenskra karlkylfinga á risamóti. Hann átti nokkuð skrautlegan fyrsta hring á Carnoustie vellinum í dag og endaði á einu höggi yfir pari.

„Þetta er eiginlega klikkun. Var einn furðulegasti golfhringur sem ég hef spilað, einn sá skemmtilegasti líka. Ég var ekkert að pæla í skorinu. Það var mikið af mjög góðum höggum og nokkur léleg,“ sagði Haraldur við Þorstein Hallgrímsson að loknum fyrsta hring í Skotlandi í dag.

„Það var mjög gott veður í dag, algjör draumur. En þeir settu pinnastaðsetningar svolítið erfiðar og ég var með frekar varkárt gameplan,“ sagði Haraldur en púttin voru oft aðeins að bregðast honum í dag, sérstaklega á fyrri níu, eftir fín högg.

Haraldur fékk fimm fugla á seinni níu holunum, holum sem eru taldar með þeim erfiðustu á öllum tíu völlunum sem Opna breska er spilað á.

„Varkárt af teig. Við vorum aldrei þannig séð að spá í pinnastaðsetningu og slá á pinna, það voru bara nokkur högg sem við slóum á pinnan. Svo datt pútterinn í gírinn þarna á seinni.“



Haraldur er í fínni stöðu fyrir annan dag á morgun, hann endaði jafn í 68. sæti þegar hann lauk leik. Þó eiga margir kylfingar enn eftir að ljúka leik.



„Ég var svo stressaður að hvert einasta bein skalf í líkamanum. Ég vissi ekki hvort ég gæti hitt kúluna.“



Opna breska meistaramótið er eitt af fjórum risamótum í karlagolfinu og það elsta, mótið í ár er 147. Opna mótið.

Haraldur á hringnum í dagvísir/friðrik
„Þetta er ógeðslega gaman, ég get ekki útskýrt það á nokkurn annan hátt. Þetta er meira en ég bjóst við, og ég var með háar væntingar,“ sagði Haraldur Franklín Magnús.

Vísir er með beinar textalýsingar af hringjum Haralds á mótinu og sýnt er beint frá mótinu alla helgina á Golfstöðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×