Bíó og sjónvarp

Harald gengur til liðs við Sagafilm

Þórður Ingi Jónsson skrifar
Harald Haraldsson hefur getið sér gott orð sem leikstjóri.
Harald Haraldsson hefur getið sér gott orð sem leikstjóri. vísir/stefán
„Mín aðkoma verður sem leikstjóri fyrir tilfallandi kvikmynduð auglýsingaverkefni á Íslandi, að öðru leyti haldast mínir hagir óbreyttir í öðrum verkefnum erlendis og eigin rekstri,“ segir Harald Haraldsson, leikstjóri og listamaður. Hann hefur nú gengið til liðs við fyrirtækið Sagafilm. „Þetta samstarf er nokkuð nýtilkomið og verður spennandi að hefjast handa strax á nýju ári.“

Harald er búsettur í New York og hefur unnið jöfnum höndum að auglýsingum, tónlistarmyndböndum og gagnvirkum listaverkum. Hann hefur getið sér gott orð sem leikstjóri með framsækinn stíl sem sækir oft innblástur í list og tækni, til dæmis í auglýsingu fyrir Símann og Samsung þar sem iðnaðarvélmenni voru forrituð til að stjórna upptökuferlinu.

„Okkar samstarf verður ekki drifið áfram af tækni heldur frekar fyrsta flokks auglýsingaframleiðslu og kvikmyndagerð sem á erindi við fólk. Samanborið við mín fyrri verkefni þá held ég að okkar samstarf verði að vissu leyti hefðbundnara, en engu að síður með mínum stílbrigðum sem oft eru vissulega innblásin af tækni,“ segir Harald. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×