Handbolti

Hansen og Neagu besta handboltafólk heims

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Daninn Mikkel Hansen og hin rúmenska Cristina Neagu hafa verið valin besta handboltafólk heims af Alþjóða handknattleikssambandinu, IHF.

Það voru bæði fjölmiðlar og almenningur sem kaus besta handboltafólkið að þessu sinni.

Hansen var valinn bestur síðast árið 2011 og liðsfélagi hans hjá PSG, Nikola Karabatic, varð annar í kjörinu. Domagoj Duvnjak, Thierry Omeyer og Rafael Capote komu þar á eftir.

Hjá konunum var Neagu með mikla yfirburði í kjörinu. Hún fékk yfir helming atkvæða fjölmiðla og 73 prósent handknattleiksáhugamanna kusu hana einnig.

Hin norska Heidi Löke varð önnur í kjörinu og Nycke Groot frá Hollandi varð þriðja.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×