Viðskipti erlent

Hans Rosling: Heimurinn betur settur í dag en fyrir fimmtíu árum

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Sænski fræðimaðurinn Rosling hefur vakið athygli fyrir einfaldar og áhrifamiklar útskýringar sínar á heimsmálunum.
Sænski fræðimaðurinn Rosling hefur vakið athygli fyrir einfaldar og áhrifamiklar útskýringar sínar á heimsmálunum.
Þrátt fyrir að heimurinn sé ekki eins og allir vilja hafa hann höfum við það almennt betur en fyrir fimmtíu árum síðan. Sænski fræðimaðurinn Hans Rosling, sem vakti mikla athygli á netinu þegar hann útskýrði flóttamannastrauminn frá Sýrlandi, útskýrði stöðuna í útsendingu Channel 4 News í Bretlandi.

Í útsendingunni fór Rosling yfir það hvernig stærri hluti fólks í heiminum hafi hærri ráðstöfunartekjur en áður; einn af hverjum sjö búi við sára fátækt í dag samanborið við tvo af hverjum þremur fyrir fimmtíu árum síðan.

Útskýringu Roslings má sjá hér fyrir neðan:

Are we better off than we think?

Despite global inequalities, most of the world is better off than you think - and better off than it has ever been before. Watch Hans Rosling explain why.

Posted by Channel 4 News on Friday, November 20, 2015

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×