Fótbolti

Hannes Þór: Svo gaman að helst vil ég fara alla leið

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Hannes Þór vill ekki fara heim.
Hannes Þór vill ekki fara heim. vísir/getty
Hannes Þór Halldórsson, markvörður íslenska landsliðsins, hefur fulla trú á því að okkar menn haldi hreinu gegn Austurríki í leik liðanna á Stade France í dag.

Haldi íslenska liðið hreinu er það öruggt með sæti í 16 liða úrslitum en strákana okkar vantar bara eitt stig í dag til að komast áfram. Með sigri og hagstæðum úrslitum í leik Ungverjalands og Portúgals getur Ísland meira að segja unnið riðilinn.

„Það sem gerir mig vissan um að við höldum hreinu er hvernig liðið hefur spilað síðustu tvö ár. Okkur hefur líka gengið vel á þessu móti og ef við höldum áfram að spila svona verður erfitt að skora gegn okkur,“ sagði Hannes Þór á blaðamannafundi Íslands í gær.

Markvörðurinn hefur staðið sig frábærlega á mótinu og ekki fengið á sig nema tvö mörk. Annað þeirra var sjálfsmark. Hann segir íslenska liðið ekki hafa nokkurn áhuga á að fara heim þar sem upplifunin er búin að vera frábær.

„Upplifunin að spila fyrir framan þessa frábæru íslensku stuðningsmenn er frábær. Við erum ótrúlega þakklátir fyrir stuðninginn. Það vill enginn hérna að þetta endi. Helst vil ég fara alla leið,“ sagði Hannes.

„Okkur líður alveg svakalega vel og við viljum ekki að þetta hætti. Við njótum þess að vera á þessum stað og spila fótbolta á stærsta sviðinu. Okkur leiðist ekki í eina sekúndur,“ sagði Hannes Þór Halldórsson.

Ekki missa af neinu sem gerist á EM í Frakklandi. Vísir er með hóp fjölmiðlamanna á mótinu sem færa ykkur allar nýjustu fréttirnar af strákunum okkar. Fylgdu okkur á Facebook, Twitter og Snapchat (sport365).


Tengdar fréttir

Austurríska landsliðið: Skrekkur á stóra sviðinu

Austurríkismenn voru með eitt besta liðið í undankeppni EM 2016 en þeir eru bara með eitt stig og enn án sigurs á EM í Frakklandi eftir tvo leiki. Sigur á Íslandi kemur þeim áfram en öll önnur úrslit þýða að liðið er úr leik.

Enginn tilbúinn að kveðja EM í dag

Íslenska landsliðið mætir Austurríki á Stade de France í lokaleik liðsins í París í dag. Nái strákarnir okkar ekki góðum úrslitum kveðja þeir Frakkland og það sem meira er, þetta yrði síðasti leikur Lars Lagerbäck.

EM dagbók: Sjáumst á fimmtudag!

Starfsfólkið á hóteli okkar fjölmiðlamanna í Annecy er yndislegt. Þetta er fremur lítið hótel sem er þekktara fyrir veitingastaðinn sinn en sjálfa hótelstarfsemina. Stjarna matseðilsins er lasanja "hennar mömmu“ eins og rétturinn er auglýstur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×