Viðskipti innlent

Hannes Smárason: „Ég kannast ekkert við þessi viðskipti”

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Hannes Smárason ásamt verjendum sínum í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.
Hannes Smárason ásamt verjendum sínum í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Vísir/GVA
Hannes Smárason, fyrrum stjórnarformaður og forstjóri FL Group, neitaði sök í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun þegar aðalmeðferð í fjárdráttarmáli sérstaks saksóknara gegn honum hófst.

Hannes er ákærður fyrir að hafa fært 2,85 milljarða króna af reikningi FL Group yfir á reikning Fons eignarhaldsfélags þann 25. apríl 2005. Hannes var þá starfandi stjórnarformaður FL Group en Pálmi Haraldsson var aðaleigandi Fons.

Á fjárhæðin að hafa verið millifærð án vitundar og samþykkis stjórnenda og stjórnar FL Group. Verði Hannes fundinn sekur gæti hann átt yfir höfði sér allt að 6 ára fangelsi.

Við skýrslutöku í morgun bar saksóknari, Finnur Vilhjálmsson, ýmis skjöl og tölvupósta undir Hannes. Flestum spurningum saksóknara svaraði Hannes með orðunum „Ég man það ekki,” eða „Ég kannast ekki við það.” Bar hann fyrir sig að gögnin væru 10 ára gömul og erfitt væri að muna svo langt aftur í tímann.

Þegar Hannes var spurður beint út í sjálfa millifærsluna af saksóknara sagði hann:

„Ég kannast ekkert við þessi viðskipti.”

Dómari greip þá inn í og spurði Hannes hvort að hann hafi ekki látið millifæra peningana inn á reikning Fons. Svaraði Hannes neitandi.

Reiknigsyfirlit eða innanhússkjal úr bankanum?

Saksóknari byggir mál sitt á reikningsyfirliti sem sýnir allar færslur inn og út af þeim reikningi FL Group sem peningurinn fór inn til Fons.

Þar sést að 46.500.000 Bandaríkjadala komu inn á reikninginn þann 22. apríl 2005. Þeirri upphæð var svo skipt yfir í íslenskar krónur, umrædda 2,85 milljarða, sem sýnt er svo á yfirlitinu að hafi farið til Fons.

Hannes sagði að ekki væri um reikningsyfirlit að ræða heldur innanhússkjal úr Kaupþing Bank Luxembourg sem væri að engu leyti bindandi fyrir viðskiptavini. Millifærslan kæmi hvergi fram á bindandi reikningsyfirlitum og því sýndu engin gögn málsins að hún hafi farið fram.

Tókust hann og saksóknari nokkuð á um þessa hugtakanotkun og sagði saksóknari að það væri skoðanaágreiningur á milli þeirra um hvort væri að ræða reikninsyfirlit eða ekki. 

„Það er ekki um neinn skoðanaágreining að ræða. Þetta er einfaldlega ekki reikningsyfirlit og ég vil bara að dómarinn sé meðvitaður um það,” sagði Hannes þá.

Segir hagsmuni sína og FL Group hafa farið algjörlega saman

Hannes segir að umræddur reikningur sem peningarnir eiga að hafa farið út af hafi verið lokaður. Því hafi ekki mátt millifæra neitt af honum samkvæmt lögum um peningaþvætti í Lúxemborg. Það megi því sækja þá bankamenn til saka þar ef umrædd millifærsla hafi átt sér stað og bað Hannes saksóknara um að íhuga það.

Þá benti Hannes á að sem stærsti hluthafi FL Group á þeim tíma sem meint brot átti sér stað hafi hagsmunir hans og félagsins farið algjörlega saman. Sagðist hann því ekki skilja hvernig nokkrum detti í hug að hann hafi stefnt hagsmunum FL Group í hættu. Þá hafi hann ekki haft nein tengsl eða neina beina hagsmuni af rekstri Fons eða fyrirtækjum í eigu þess.


Tengdar fréttir

Hannes Smárason fyrir dóm á morgun

Aðalmeðferð í máli sérstaks saksóknara gegn Hannesi Smárasyni, fyrrum stjórnarformanns og forstjóra FL Group, fer fram í Héraðsdómi Reykjavíkur á morgun.

Hannes fer fram á að málinu verði vísað frá

Gísli Guðni Hall, verjandi Hannesar Þórs Smárasonar, krafðist þess í morgun í Héraðsdómi Reykjavíkur að máli sérstaks saksóknara gegn honum yrði vísað frá.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×