Fótbolti

Hannes samdi við Randers FC

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Hannes Þór Halldórsson,
Hannes Þór Halldórsson, Vísir/Getty
Landsliðsmarkvörðurinn Hannes Þór Halldórsson er orðinn leikmaður danska félagsins Randers FC en Íslendingurinn Ólafur H. Kristjánsson þjálfar einmitt liðið. Randers segir frá þessu á heimasíðu sinni.

Hannes er búinn að ganga frá þriggja ára samningi en hann kemur þangað frá hollenska liðinu NEC Nijmegen. Hannes var hinsvegar á láni hjá Bödo/Glimt í Noregi eftir að hann kom til baka úr axlarmeiðslum.

Hannes stóð sig frábærlega með íslenska landsliðinu á EM í Frakklandi og varði meðal annars flest skot af öllum markvörðum mótsins.

„Það var stórkostleg upplifun að fá að vera hluti af ævintýri íslenska landsliðsins á EM. Nú er ég tilbúinn að byrja nýjan kafla hjá Randers og hlakka til að byrja nýtt tímabil," sagði Hannes Þór í viðtali á heimasíðu Randers FC.

Randers FC var að leita að markverði eftir að Karl-Johan Johnsson fór til franska liðsins EA Guingamp.

„Við erum mjög ánægðir með hafa fá til okkar jafngóðan markvörð og Hannes Halldórsson. Hann var fastamaður í liði sem sló út England í sextán liða úrslitum EM. Þetta er markvörður með alþjóðlega reynslu," sagði Ole Nielsen, íþróttastjóri Eanders.

Hannes verður í hóp hjá Randers á mánudaginn þegar fyrsta umferðin í dönsku deildinni fer fram.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×