Fótbolti

Hannes og félagar héldu hreinu í fyrsta skipti í þrjá mánuði

Anton Ingi Leifsson skrifar
Hannes einbeittur og gerði vel í dag þegar liðið hélt hreinu.
Hannes einbeittur og gerði vel í dag þegar liðið hélt hreinu. vísir/getty
Hannes Þór Halldórsson og samherjar hans í Randers gerðu markalaust jafntefli við Hobro á heimavelli í dag í dönsku úrvalsdeildinni.

Randers, sem er á botni deildarinnar, fékk tækifæri til þess að vinna leikinn, en allt kom fyrir ekki og lokaniðurstaðan markalaust jafntefli.

Liðið er því enn á botni deildarinnar með fimmtán stig, stigi frá Helsingör sem er sæti ofar. Þetta er í fyrsta skipti frá því 5. nóvember sem Hannes og leikmenn Randers halda hreinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×