Fótbolti

Hannes í úrvalsliði mánaðarins

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Hannes fékk aðeins eitt mark á sig í ágúst.
Hannes fékk aðeins eitt mark á sig í ágúst. vísir/getty
Hannes Þór Halldórsson, aðalmarkvörður íslenska landsliðsins í fótbolta, var valinn í úrvalslið ágúst-mánaðar í dönsku úrvalsdeildinni hjá Tipsbladet.

Hannes lék fjóra leiki með Randers í ágúst og fékk aðeins á sig eitt mark í þeim.

Randers vann þrjá af þessum fjórum leikjum, alla með markatölunni 1-0, og gerði eitt jafntefli.

Ólafur Kristjánsson er þjálfari Randers sem er í 4. sæti dönsku deildarinnar með 14 stig.

Tveir aðrir leikmenn Randers eru í úrvalsliði Tipsbladet; miðvörðurinn Mads Fenger og miðjumaðurinn Mikkel Kallesöe.

Næsti deildarleikur Randers er gegn Lyngby föstudaginn 9. september næstkomandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×