Innlent

Hannes Hólmsteinn telur vert að setja gæsalappir um „doktor í heimspeki“

Jakob Bjarnar skrifar
Hannes telur fráleitt að titla Henry doktor þá er hann tjáir sig um Illuga Gunnarsson.
Hannes telur fráleitt að titla Henry doktor þá er hann tjáir sig um Illuga Gunnarsson.
Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, hefur sitthvað við framgöngu Henrys Alexanders Henrýssonar heimspekings að athuga, en Henry var kallaður til að ræða siðferðileg álitaefnis sem snúa að stöðu Illuga Gunnarssonar menntamálaráðherra í Stóru málunum á Íslandi í dag, sem fréttamaðurinn Lóa Pind hafði umsjá með. Henry Alexander er doktor í heimspeki og starfar við Siðfræðistofnun. Heimspekingurinn sagði að því miður væri Illugi í mjög veikri stöðu og við spurningunni, á hann að segja af sér, sagði Henry Alexander:

„Ég segi já. Þá með því fororði að við erum svolítið furðuleg hér á Íslandi að það er stundum látið eins og að þetta sé eins og að enda líf. En, það er fjarri því. Hann þarf bara að skoða stöðu sína í smá tíma.“

Þessi orð heimspekingsins hafa ekki lagst vel í stuðningsmenn Illuga, og þar í flokk má setja Hannes Hólmstein. Hann gerir málið að umtalsefni á Facebook-síðu sinni og telur rétt að setja gæsalappir utan um titil Henrys.

„Þessi krafa „doktors í heimspeki“ er fáránleg. Hvar er brotið? Hvernig hafa hagsmunir almennings verið skertir? Öðru máli gegnir um Má Guðmundsson, sem lét ekki aðeins greiða sér málskostnað í eigin máli gegn opinberri stofnun, heldur tapaði af klaufaskap sextíu milljörðum í Danmörku og fór langt fram úr heimildum í málarekstri gegn einstaklingum (Samherji, Heiðar Guðjónsson). Og um Dag Bergþóruson Eggertsson, sem úthlutar verðmætum lóðum langt undir raunvirði (sem myndi finnast með því að bjóða þær upp), keyrir borgarsjóð í kaf og ógnar viðskiptahagsmunum Íslendinga. Hvers vegna talar „doktorinn í heimspeki“ ekkert um það?“

Ýmsum þykir þetta brött ummæli, kannski ekki síst í ljósi þess að Hannes Hólmsteinn hefur lent í vandræðum með gæsalappir þegar hann var kærður fyrir ritstuld úr verkum Halldórs Laxness, í bókum sínum um nóbelsskáldið; þá fyrir að gæta ekki að notkun þeirra. Hér virðist sem hann hins vegar ofnoti gæsalappirnar fremur en að vera of spar á þær, því með notkun þeirra er ótvírætt verið að gefa til kynna að þessi titill megi heita vafasamur þegar téður Henry á í hlut. Meðal þeirra sem spyrja Hannes nánar út í þessa framsetningu er Illugi Jökulsson fjölmiðlamaður. Hannes svarar: „Mér finnst hallærislegt að kynna einhvern sem „doktor í heimspeki“, þegar hann tekur til máls. Skoðanir hans eru hvorki betri né verri fyrir það.“

Þessi krafa 'doktors í heimspeki“ er fáránleg. Hvar er brotið? Hvernig hafa hagsmunir almennings verið skertir? Öðru má...

Posted by Hannes Hólmsteinn Gissurarson on 16. október 2015

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×