Innlent

Hannes Hólmsteinn átti frumkvæðið

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor í stjórnmálafræði.
Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor í stjórnmálafræði.
Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor hefur staðfest að hafa átt frumkvæði að rannsókn á erlendum áhrifaþáttum bankahrunsins árið 2008, en hann var skipaður í stöðu umsjónarmanns verkefnisins á dögunum. Verkefnið er á vegum Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands og er það unnið fyrir fjármálaráðuneytið.

Hann segir þó hugmyndina ekki upphaflega frá honum komna og að verkefnið hafa borið að með sama hætti og sambærilegt verkefni um tekjudreifingu og skatta sem hann hafði umsjón með á vegum Félagsvísindastofnunar fyrir fjármálaráðuneytið árin 2007-2008.

Fjármálaráðuneytið kemur til með að styrkja verkefnið um tíu milljónir króna og eru Birgir Þór Runólfsson, fyrrverandi stjórnarmaður SPKef og dósent í hagfræði og Ásgeir Jónsson fyrrverandi yfirmaður greiningadeildar Kaupþings og dósent í hagfræði á meðal þeirra sem starfa munu með Hannesi í verkefninu.

Hannes hefur sætt töluverðri gagnrýni vegna ákvörðunar um að hann stýri slíku verkefni en segist hann lítið kippa sér upp við það. „Auðvitað er þetta fjöður, sem orðin er að fimm hænum. En þetta skiptir svo sem engu máli, því að skýrslan, sem ég hef umsjón með og mun vinna í samstarfi við ýmsa fræðimenn, verður á ensku og aðallega hugsuð fyrir útlendinga, til að varpa ljósi á erlendu áhrifaþættina í íslenska bankahruninu. Þeir lesendur verða ekki með fyrirfram mótaðar skoðanir vegna fordóma í garð umsjónarmannsins,“ segir Hannes.


Tengdar fréttir

Sætir furðu hversu litlu fjármagni er varið í verkefnið

"Þetta er bara brotabrot af því sem aðrar rannsóknarnefndir hafa kostað, til dæmis rannsóknarnefndir sparisjóðanna og húsnæðislánasjóðs. Það kostaði hundruð milljóna. Ég botna bara ekkert í þessu,“ segir Hannes Hólmsteinn Gissurarson.

Skiptir máli hvað er sagt en ekki hver segir það

Hannes Hólmsteinn Gissurason telur að þekking hans og reynsla muni koma til með að nýtast honum við rannsókn á áhrifum erlendis frá á efnahagshrunið á Íslandi. Sagnfræðingur segir ómögulegt að ætla að söguskoðun og skrásetning hennar litist ekki af þeim sem skrifa hana.

Hannes Hólmsteinn fenginn til að rannsaka bankahrunið

Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor mun hafa umsjón með verkefni á vegum Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands þar sem metnir verða erlendir áhrifaþættir bankahrunsins haustið 2008.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×