Fótbolti

Hannes: Getur orðið eitt svakalegasta partý á landinu á sunnudaginn

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Hannes Þór Halldórsson fagnar sigri eftir leik.
Hannes Þór Halldórsson fagnar sigri eftir leik. Vísir/Valli
Hannes Þór Halldórsson, markvörður íslenska liðsins, hélt marki sínu hreinu í fimmta sinn í undankeppni EM 2016 í kvöld þegar Ísland vann 1-0 sigur á Hollendingum á Amsterdam Arena.

„Ég held að liðsfélagarnar mínir í Hollandi séu fyrst og fremst að bölva sínu liði en ég held að þeir samgleðjist mér nú. Það var mín tilfinning þegar var að kveðja þá. Þeir óskuðu mér allir góðs gengis," sagði Hannes Halldórsson sem átti flottan leik í marki Íslands.

„Ég skynja það í Hollandi að fólk er svolítið pirrað út í landsliðið sitt. Það virðast ekki allir halda með því af fullum hug og það var eins og þeim langaði að þeir yrði slegnir niður á jörðina," sagði Hannes um tilfinningu hans fyrir því stöðu hollenska fótboltalandsliðsins meðal þjóðar sinnar.

Það gengur allt á afturfótunum hjá Hollendingum en á sama tíma er íslenska liðið að endurskrifa söguna aðra undankeppnina í röð.

Íslenska landsliðið þarf nú bara eitt stig í síðustu þremur leikjum sínum til þess að tryggja sér sæti á EM. Það gæti komið strax  á móti Kasakstan á Laugardalsvelli á sunnudagskvöldið.

„Það verður eitthvað að koma núna heim. Nú verðum við bara að klára þetta á heimavelli á sunnudaginn og það verður eitthvað svakalegasta partý sem haldið hefur verið á landinu ef við gerum það," sagði Hannes og Ísland er að fara á EM.

„Ég ætla ekkert annað en til Frakklands næsta sumar. Við verðum þar," sagði Hannes kátur að lokum.


Tengdar fréttir

Jón Daði: Fékk gæsahúð yfir þjóðsöngnum

Jón Daði Böðvarsson var hrærður þegar blaðamaður Vísis hitti á hann að leik loknum í kvöld en hann sagði það mikil forréttindi að fá að spila með þessu liði.

Birkir Bjarna: Heppnir að Robben fór af velli

Birkir Bjarnason var maðurinn á bak við sigurmarkið á móti Hollandi á Amsterdam Arena í kvöld en hann fiskaði vítið sem Gylfi Þór Sigurðsson skoraði eina mark leiksins úr í upphafi seinni hálfleiks.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×