Enski boltinn

Hannes einn af þeim sem UEFA telur að hafi breytt lífi sínu á EM í Frakklandi

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Hannes Þór Halldórsson á góðri stundu á EM í Frakklandi.
Hannes Þór Halldórsson á góðri stundu á EM í Frakklandi. Vísir/Getty
Hannes Þór Halldórsson, markvörður íslenska fótboltalandsliðsins, átti mjög flott Evrópumót og var einn allra besti markvörður mótsins í Frakklandi.

Hannes er einn af hetjum íslenska liðsins enda bjargaði hann margoft með glæsilegum hætti þegar pressan var hvað mest á íslenska liðið á mótinu.

Hannes komst kannski ekki í úrvalslið UEFA en hann varði flest skot allra markvarða og er líka einn af átta leikmönnum á EM sem UEFA hefur valið í grein sinni um þá leikmenn sem sprungu út á Evrópumótinu í Frakklandi.

UEFA nefnir þar leikmenn sem gerbreyttu lífi sínu með frammistöðu sinni á mótinu sem lauk með sigri Portúgals á sunnudagskvöldið.

Hannes er ekki bara einn af þessum átta leikmönnum því auk þess að telja hann með í þessum hóp þá er aðalmynd greinarinnar tilfinningarík mynd af okkar manni.

Einn annar markvörður er í hópnum eða norður-írski landsliðsmarkvörðurinn Michael McGovern sem átti meðal annars ótrúlegan leik á móti heimsmeisturum Þjóðverja.

Hinir sex eru 22 ára bakvörður frá Portúgal (Raphaël Guerreiro), 27 ára framhjá frá Wales (Hal Robson-Kanu), 29 ára kantmaður frá Spáni (Nolito), 22 ára varnarmaður frá Albaníu (Arlind Ajeti), 28 ára pólskur miðvörður (Michal Pazdan) og 24 ára hægri bakvörður frá Belgíu (Thomas Meunier).

Í umfjölluninni um Hannes segir að þessi kvikmyndaleikstjóri í hlutastarfi hafi aðeins orðið atvinnumaður fyrir þremur árum síðan en á EM hafi hann sýnt að hann sé klár á stóra sviðið með því að koma í veg fyrir að menn eins og Cristiano Ronaldo, David Alaba og Harry Kane skoruðu hjá íslenska liðinu. Íslenska liðið fór síðan alla leið í átta liða úrslitin og Hannes varði fleiri skot en nokkur annar markvörður á Evrópumótinu.

Vísir/Getty
Vísir/Getty
Vísir/Getty



Fleiri fréttir

Sjá meira


×