Fótbolti

Hannes: Þetta var rétta skrefið fyrir minn feril

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Hannes Þór Halldórsson.
Hannes Þór Halldórsson. Vísir/Getty
Hannes Þór Halldórsson gekk í dag frá þriggja ára samningi við danska úrvalsdeildarliðið Randers og mun því spila fyrir Ólaf H. Kristjánsson næstu árin.

„Ég er ótrúlega spenntur að byrja nýjan kafla hjá Randers FC. Ég tel að þetta sé rétta skrefið fyrir minn feril. Ég hef verið hjá félaginu áður og þekki því vel til þarna. Ég veit hvað félagið stendur fyrir og ég veit að þetta er líka góður staður fyrir fjölskylduna," sagði Hannes Þór Halldórsson í viðtali á heimasíðu Randers.

Það var mikill áhugi á Hannesi eftir frábæra frammistöðu hans á EM og sáu einhverjir hann fyrir sér fara í sterkari deild en þá dönsku. Hannes er hinsvegar mjög sáttur við allt sem býðst hjá Randers. Hann er hinsvegar orðinn 32 ára gamall og þetta gæti því verið einn af síðustu stóru samningum hans á ferlinum.

Hannes kom til reynslu hjá félaginu árið 2012 en var áfram í tvö tímabil með KR. Hannes fór til norska liðsins Sandnes 2014 eftir að hafa orðið Íslandsmeistari með KR í annað skiptið á þremur árum.

„Ég er reyndur markvörðu sem er hægt að treysta á og ég geri ekki stór mistök. Það er samt erfitt að tala um sjálfan sig og ég mun því láta aðra um að dæma mig," sagði Hannes.

Hannes hefur þó aldrei spilað fyrir Ólaf Kristjánsson áður þó að hann þekki til landa síns. „Ísland er nú ekki það stórt land og íslenski fótboltaheimurinn er enn minni. Við þekkjum því hvorn annan vel," sagði Hannes.

„Ég ber mikla virðingu fyrir Ólafi. Hann er með góðan fótboltahaus og ég er mjög spenntur fyrir framtíðarsýn félagsins. Það verður því gott að fá að byrja," sagði Hannes.

Hannes verður þriðji íslenska leikmaðurinn hjá Randers en félagar hans í íslenska landsliðinu, þeir Theódór Elmar Bjarnason og Ögmundur Kristinsson voru áður í herbúðum liðsins.


Tengdar fréttir

Ólafur vill fá Hannes til Randers

Ólafur Kristjánsson, nýráðinn þjálfari Randers, vill fá landsliðsmarkvörðinn Hannes Þór Halldórsson til danska liðsins.

Hannes samdi við Randers FC

Landsliðsmarkvörðurinn Hannes Þór Halldórsson er orðinn leikmaður danska félagsins Randers FC en Íslendingurinn Ólafur H. Kristjánsson þjálfar einmitt liðið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×