Fótbolti

Hannes: Það eru margir sem myndu borga sig inn á þessa fundi landsliðsins

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Íslensku landsliðsmennirnir í fótbolta þurftu að sitja á mörgum liðsfundum á meðan þjálfararnir Lars og Heimir fóru yfir málin í Evrópukeppninni.

„Til að byrja með þá voru nokkrir á dag en þá var verið að hamra inn áherslunum. Við erum búnir að sjá þetta allt nokkuð oft núna,“ segir Hannes Þór Halldórsson í viðtali sem var tekið við gerð heimildarmyndarinnar Jökullinn logar.

„Þjálfararnir trúa mjög á endurtekningar og að halda áfram að hamra á hlutunum. Ég held að það sé alveg rétt hjá þeim,“ segir Hannes.

Strákarnir okkar segja frá öllum fundum íslenska landsliðsins í myndinni Jökullinn logar sem er komin út á DVD. Myndband af því má sjá í spilaranum hér að ofan.

„Miðað við hvað ég fer á marga langa og leiðinlega fundi út í Rússlandi þá er þetta algjör draumur,“ segir Ragnar Sigurðsson.

„Það finnst örugglega öllum leikmönnum leiðinlegt á þessum fundum en þetta hefur borgað sig. Það er engin spurning um það,“ segir Gylfi Þór Sigurðsson.

„Mér finnst þetta reyndar ekkert leiðinlegt. Ef ég hugsa nokkur ár aftur í tímann og hvað ég hefði gefið mikið fyrir að fá að vera í innsta hring í landsliðinu og fá að sitja á öllum fundum og sjá hvað er verið að tala um. Það eru margir sem myndu borga sig inn á þessa fundi til að fá að upplifa þá,“ sagði markvörðurinn Hannes Þór Halldórsson.

Sölvi spyr líka Eið Smára Guðjohnsen hreint út í valið á byrjunarliðinu fyrir leik á móti Tékkum en í leiknum á undan hafði Eiður Smári skoraði á móti Kasakstan.  Á undan er sýnt myndbrot frá því þegar byrjunarliðið er tilkynnt þar sem Jóhann Berg Guðmundsson byrjar í framlínunni en ekki Eiður Smári.

„Ef ég hefði verið þjálfarinn þá hefði ég ekki gert þetta svona,“ svaraði Eiður Smári hlæjandi.

Brot úr aukaefni myndarinnar Jökullinn logar má sjá hér að ofan. Jökullinn Logar er mynd Sölva Tryggvasonar um ferðalag strákanna okkar á EM í Frakklandi en hún er nú komin út á DVD með 120 mínútum af aukaefni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×