Fótbolti

Hannes: Langt síðan mig hefur langað jafn mikið að vinna fótboltaleik

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Hannes Þór Halldórsson verður væntanlega í eldlínunni þegar Ísland leikur gegn Kósóvó ytra í undankeppni HM 2018 á föstudag. Hannes Þór var ásamt félögum sínum í landsliðinu á æfingu í Parma á Ítalíu í morgun, þar sem Vísir spjallaði við hann.

„Ég er að koma úr gríðarlegum vonbrigðum með Randers, það er ekki hægt að neita því,“ sagði Hannes en viðtalið allt má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.

Randers hefur tapað átta af síðustu níu leikjum sínum í dönsku deildinni og datt af þeim sökum í neðri hluta deildarinnar, þar sem liðið mun nú berjast um fall í stað þess að berjast um titilinn.

„Á sunnudag var síðasti leikurinn áður en hún skiptist í tvennt og þar náðum við ekki markmiðum okkar. Við höfum verið í toppbaráttu allt tímabilið en gekk svo hræðilega í síðustu leikjunum. Það voru mikil vonbrigði í síðast leik.“

Hannes segir að honum líði þess fyrir utan vel í Danmörku en slæmt gengi liðsins setjist alltaf á leikmennina líka. Hann hefði sjálfur viljað standa sig betur inni á vellinum.

„Þegar lið tapar átta af níu leikjum þá eru allir að gera eitthvað vitlaust. Ef ég horfi á mína frammistöðu finnst mér hún vera aðeins undir pari miðað við það sem ég býst við af sjálfum mér. Ég vil vera markmaður sem bjargar stigum fyrir sín lið en það hefur ekki verið nógu mikið um það upp á síðkastið,“ segir hann.

Hannes var að glíma við axlarmeiðsli á síðasta ári en segir að öll sú saga sé nú að baki. Hann segir ánægjulegt að vera kominn aftur í landsliðið og þann félagsskap sem því fylgir.

„Eftir vonbrigðin heima er frískandi að kúpla sig út og mæta í góðu stemninguna í landsliðinu. Mig þyrstir mjög í að vinna fótboltaleik og það er það sem ég verð að taka jákvætt úr þessu. Það er langt síðan að mig hefur langað jafn mikið að vinna fótboltaleik og nú. Ég tek það með mér inn í leikinn á föstudag.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×